Nú er HM bara rétt handan við hornið og því kominn tími á að gefa út fyrirkomulag upphitunar í Munchen fyrir þá fjölmörgu stuðningsmenn Íslands sem þangað mæta.




Upphitunarstaðirnir eru tveir og dagskráin eftirfarandi:


– 11.jan byrjar upphitun í Beer Garden klukkan 14:00 (Ísland – Króatía hefst 18:00)

– 13.jan byrjar upphitun í Beer Garden klukkan 15:00 (Spánn – Ísland hefst 19:00)

– 14.jan byrjar upphitun í Seerestaurant 12:00 (Ísland – Bahrain hefst 15:00)

– 16.jan byrjar upphitun í Seerestaurant 13:30 (Japan – Island hefst 15:30)

– 17.jan byrjar upphitun í Beergarden 14:00 (Makedónía – Ísland hefst 18:00) 

Beergarden staðurinn er staðsettur í sjálfri keppnishöllinni og Seerestaurant er í 3 mínútna göngu fjarlægð frá keppnishöllinni. Staðsetninguna sjáið þið á kortinu hér að neðan. 

Í upphituninni verða seldar veitingar og drykkir og okkar ástkæra Sérsveit mun koma öllum í rétta gírinn og býður Sérsveitin upp á andlitsmálun. Hægt er að fylgjast með Sérsveitinni á facebook með því að smella
hér

Treyjusalan fer fram í Seerestaurant því okkur er óheimilt að selja treyjur og annan varning í keppnishöllinni sjálfri. Treyju salan fer fram á eftirfarandi tímasetningum:

– 11.jan Sala á treyjum og stuðningsmannavörum hefst 12:00 í Seerestaurant.

– 12.jan Sala á treyjum fer fram í miðborg Munchen á hótelinu Holiday Inn Munich City frá 15:00 – 17:00.

– 13.jan Sala á treyjum og stuðningsmannavörurm hefst 12:00 í Seerestaurant. 
– 16.jan Sala á treyjum hefst 13:00 í Seerestaurant.
– 17.jan Sala á treyjum hefst 14:00  Seerestaurant.

Á fyrstu tveimur leikjunum verður Áfram Ísland með stuðningsmannavörur til sölu.