A landslið kvenna | Ísland – Ísrael í dag

Stelpurnar okkar leika í dag sinn fyrri leik í forkeppni fyrir HM 2023 gegn Ísrael að Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 15:00 og er frítt inn í boði Arion banka. Sigurvegarinn í viðureignunum kemst áfram í umspil um laust sæti á HM. Liðin mætast að öðru sinni á morgun að Ásvöllum klukkan 15:00.

Leikmannahópur Íslands er skipaður eftirfarandi leikmönnum í dag:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Fram (38/2)
Sara Sif Helgadóttir, Valur (5/0)

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, EH Aalborg (33/38)
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen (34/38)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (2/1)
Katrín Tinna Jensdóttir, Volda (5/2)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara HF (3/7)
Lilja Ágústsdóttir, Valur (2/0)
Perla Ruth Albertsdóttir, Fram (26/36)
Rakel Sara Elvarsdóttir, Volda (7/4)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (110/237)
Sandra Erlingsdóttir, Metzingen (14/48)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (40/42)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (69/53)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (56/87)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (115/332)

Aldís Ásta Heimisdóttir, Skara HF (6/3) meiddist á æfingu í gær og verður ekki með í leiknum í dag.

Mætum á völlum, fyllum Ásvelli og styðjum stelpurnar okkar til sigurs!

ÁFRAM ÍSLAND!