Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna hefur valið 22 leikmenn í landsliðshóp Íslands fyrir leikina í forkeppni HM 2015 við Ítalíu og Makedóníu.
Liðið heldur af stað mánudaginn 24. nóvember til Kaupmannahafnar og æfir þar og gistir í eina nótt áður en liðið leggur af stað til Ítalíu á þriðjudeginum. Lliðið mun mæta Ítölum í Chieti fimmtudaginn 27. nóvember kl 17.00. Sunnudaginn 30. nóvember kl 16.00 mæta svo Ítalir í Laugardalshöllina í síðari leik liðanna. Ísland mætir svo Makedóníu miðvikudaginn 3. desember kl 19.30 í Laugardalshöll. Daginn eftir heldur svo íslenska liðið af stað til Makedóníu þar sem síðari leikur liðanna fer fram í Skopje laugardaginn 6. desember kl 16.45.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Florentina Stanciu, Stjarnan
Guðrún Ósk Maríasdóttir, FH
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir
Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Bryndís Elín Halldórsdóttir, Valur
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Díana Dögg Magnúsdóttir, ÍBV
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur Þorgeirsdóttir, Koblenz
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss
Karen Helga Díönudóttir, Haukar
Karen Knútsdóttir, Nice
Ramune Pekarskyte, Le Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Steinunn Björndóttir, Fram
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur Ómarsdóttir, Skrim
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
Þórey Ásgeirsdóttir, Kongsvinger
Þrír nýliðar eru í hópnum að þessu sinni en það eru þær Díana Dögg Magnúsdóttir – ÍBV, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir – Selfoss og Þórey Ásgeirdóttir – Kongsvinger.