Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, teflir fram 16 leikmönnum í vináttulandsleik Íslands og Þýskalands í SAP-Arena í Mannheim kl. 16.20 í dag. Af þeim 17 leikmönnum sem eru í íslenska landsliðshópnum í Þýskalandi fær Aron Pálmarsson frí frá leiknum sem sýndir verður í beinni útsendingu á RÚV.
Aron fann til stífleika í öðru læri í gær og verður þar af leiðandi ekki með í leiknum. Ekki er ástæða til þess að taka nokkra áhættu með Aron í dag. Öllu máli skiptir að hann verði tilbúinn, eins aðrir leikmenn íslenska landsliðsins, þegar átökin hefjast á EM2020 í handknattleik eftir viku. Fyrsti leikur íslenska landsliðsins verður við Dani laugardaginn 11.febrúar.
Eftirtaldir 16 leikmenn taka þátt í leiknum fyrir Íslands hönd.
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Skjern 221/13
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 9/0
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson Lemgo, 63/141
Guðjón Valur Sigurðsson, PSG 356/1853
Vinstri skytta:
Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstad 115/215
Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson, Skjern 26/80
Haukur Þrastarson, Selfoss 12/15
Janus Daði Smárason, Aalborg 37/41
Hægri skytta:
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Lowen 173/694
Viggó Kristjánsson, Wetzlar 2/3
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer 105/311
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Elverum 20/37
Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, GOG 45/65
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV 137/162
Ýmir Örn Gíslason, Valur 33/14
Varnarmaður:
Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg 30/9
Sem fyrr segir verður leikurinn í dag sýndur í beinni útsendingu RÚV.