Íslenska karlalandsliðið í handbolta sigraði Tékkland 25-24 í Laugardalshöllinni í kvöld. Leikurinn var fyrsti leikur liðanna í undankeppni EM 2018 sem fram fer í Króatíu. Frábær stemning var í fullri Laugardalshöll í kvöld.
Mörk Íslands:
Guðjón Valur Sigurðsson 6 mörk
Rúnar Kárason 5 mörk
Arnór Þór Gunnarsson 5 mörk
Aron Pálmarsson 4 mörk
Kári Kristján Kristjánsson 3 mörk
Ólafur Andrés Guðmundsson 1 mark
Markvarsla Íslands:
Björgvin Páll Gústavsson 11 skot
Grétar Ari Guðjónsson 2 skot
Næsti leikur strákanna okkar fer fram í Úkraínu næstkomandi laugardag. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV klukkan 16.00