A landslið karla | Nýtt smit hjá Íslandi
Í hraðprófi sem tekið var í hádeginu í dag greindist Jón Birgir Guðmundsson, sjúkraþjálfari liðsins með jákvætt próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs.
PCR próf liðsins í gærkvöldi voru öll neikvæð er frá eru taldir þeir 6 sem voru í einangrun.
Sex leikmenn og einn starfsmaður liðsins hafa þá greinst síðustu daga og eru í einangrun.