Karlalandsliðið tekur á móti Úkraínu sunnudaginn 18. júní kl. 18.45 í Laugardalshöll.
Er þetta lokaleikur liðsins í undankeppni EM 2018 og er sigur nauðsynlegur í baráttunni um sæti á EM.
Miðaverð er kr. 2800,- fyrir fullorðna og kr. 1200,- fyrir börn 15 ára og yngri.
Kaupa má miða með því að smella hér.
Styðjum strákana okkar til sigurs. Áfram Ísland !