Nú er orðið ljóst að Rúnar Kárason getur ekki tekið þátt í Golden League í Noregi.
Rúnar hefur átt við meiðsli að stríða í kálfa og er það mat sjúkrateymis íslenska liðsins að hann verði ekki leikfær í mótinu. Rúnar yfirgaf íslenska liðið í morgun og hélt heim á leið.
Við minnum á leik Íslands og Danmerkur á morgun kl. 13.30, bein útsending verður frá leiknum á SportTV.
Því miður á leiðinni heim núna eftir að það var ljóst að kálfinn minn myndi ekki verða tilbúinn í allavega einn leik um helgina. Mjög svekkjandi að geta ekki stimplað sig inn hjá nýjum þjálfara, en líkaminn fylgdi ekki huganum um skjótann bata í þetta skiptið
— Rúnar Kárason (@runarkarason)
April 6, 2018