Í dag verður dregið í riðla í undankeppni EM karla en úrslitakeppni Evrópumótsins verður haldin í Svíþjóð, Noregi og Austurríki dagana 10. til 26. janúar 2020.
Í fyrsta skipti verða 24 þjóðir sem taka þátt í lokakeppninni sem þýðir að það verða 32 þjóðir í pottinum þegar dregið verður í Þrándheimi, en
dráttinn má sjá í beinni kl. 17.00 hér.
Að þessu sinni eru strákarnir okkar í 2. styrkleikaflokki.
1. styrkleikaflokkur:
Danmörk, Frakkland, H-Rússland, Króatía, Makedónía, Slóvenía, Ungverjaland, Þýskaland.
2. styrkleikaflokkur:
Bosnía, Holland, ÍSLAND, Pólland, Portúgal, Rússland, Serbía, Svartfjallaland, Tékkland.
3. styrkleikaflokkur:
Lettland, Litháen, Sviss, Slóvakía, Úkraína, Ísrael, Tyrkland.
4. styrkleikaflokkur:
Belgía, Eistland, Finnland, Færeyjar, Grikkland, Ítalía, Kosóvó, Rúmenía.
Umferðir:
Umferðir 1 og 2 verða leiknar 24. til 28. október
Umferðir 3 og 4 verða leiknar 10. til 14. Apríl.
Umferðir 5 og 6 verða leiknar 12. til 16. júní.
Tvö efstu sætin í riðlunum tryggja sér þátttökurétt í lokakeppninni ásamt fjórum liðum með besta árangurinn í þriðja sætinu. Að auki munu gestgjafarnir þrír fá sæti í lokakeppninni sem og Evrópmeistarar Spánverja.