Geir Sveinsson hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina á EM í Króatíu en í dag þurfti að skila hópnum inn til EHF.
Reikna má með því að Geir velji um 20 manna æfingahóp þegar nær dregur.
Íslenska hópinn má sjá hér:
Markverðir:
Aron Rafn Eðvarðsson, ÍBV
Ágúst Elí Björgvinsson, FH
Björgvin Páll Gústavsson, Haukar
Hreiðar Levy Guðmundsson, Grótta
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Fuchse Berlin
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein Neckar Löwen
Stefán Rafn Sigurmannsson, SC Pick Szeged
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH
Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV
Vinstri skyttur:
Aron Pálmarsson, FC Barcelona Lassa
Daníel Þór Ingason, Haukar
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad
Ólafur Gústafsson, KIF Kolding
Hægri skyttur
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Geir Guðmundsson, Cesson Rennes
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold
Rúnar Kárason, TSV Hannover/Burgdorf
Leikstjórnendur:
Arnór Atlason, Aalborg Håndbold
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Gísli Þorgeir Kristjánsson, FH
Janus Daði Smárason, Aalborg Håndbold
Línumenn/varnarmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad
Atli Ævar Ingólfsson, Selfoss
Bjarki Már Gunnarsson, Stjarnan
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Róbert Gunnarsson, Aarhus Håndbold
Ýmir Örn Gíslason, Valur
Æfingar íslenska liðsins hefjast 28. desember og strax eftir áramótin mætir Dagur Sigurðsson með sína sveit alla leið frá Japan. Liðin munu leiða saman hesta sína í vináttulandsleik í Laugardalshöll þann 3. janúar. Þá heldur íslenska liðið til Þýskalands þar sem leiknir verða tveir leikir gegn heimamönnum.
Fyrsti leikur strákanna okkar á EM í Króatíu er gegn Svíum þann 12. janúar.