A landslið karla | Ísland – Austurríki miðasala hefst á fimmtudaginn
Strákarnir okkar mæta Austurríki í umspil um laust sæti á HM í handknattleik laugardaginn 16. apríl klukkan 16:00 á Ásvöllum. Miðasalan hefst á fimmtudag kl. 12:00 á tix.is.
Fyrri leikur liðanna verður spilaður í Bregenz í Austurríki miðvikudaginn 13. apríl nk. leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma.
Fyllum Ásvelli og styðjum strákana okkar inn á næsta stórmót!
Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.