Geir Sveinsson þjálfari A landsliðs karla hefur fækkað í leikmannahópnum fyrir landsleikina tvo gegn Portúgal.
Það er þeir Björgvin Hólmgeirsson, Janus Daði Smárason og Hreiðar Leví Guðmundsson sem duttu út í dag en eftir standa 19 leikmenn sem koma til greina í leikina tvo.
Miðasala er hafin á
tix.is
Fyrri leikurinn fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 12. júní kl 17.00 og sá síðari í Porto fimmtudaginn 16. júní kl 20.00.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Alaborg
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Aðrir leikmenn:
Arnór Atlason, St. Raphael
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Aron Pálmarsson, MKB Veszprém
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Elísson, Fuchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, FC Barcelona
Guðmundur Hólmar Helgason, Valur
Guðmundur Árni Ólafsson, Mors Thy Handball
Gunnar Steinn Jónsson, VFL Gummersbach
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen
Tandri Konráðsson, Ricoh HK
Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS