Guðmundur Þ. Guðmundsson hefur valið 17 leikmenn sem halda í fyrramálið til Svíþjóðar vegna landsleikjanna gegn þar ytra. Tveir vináttulandsleikir gegn verða spilaðir gegn heimamönnum. Fyrri leikurinn fer fram föstudaginn 25. október kl. 17.00 í Kristianstad og sá síðari sunnudaginn 27. október kl. 15:00 í Karlskrona. Athugið að þetta eru íslenskir tímar.
Ef rýnt er í fyrri viðureignir liðanna má sjá að liðin hafa mæst 14 sinnum frá því í umspilinu fræga um sæti á HM 2007 (þeir leikir meðtaldir). Strákarnir okkar hafa unnið 5 leiki, einu sinni varð jafntefli en 8 sinnum hafa Svíar farið með sigur af hólmi. Svíar hafa verið í fremstu röð undanfarin ár og lentu m.a. í 2. sæti á EM 2018. Það er tveir hörkuleikir sem bíða strákanna okkar í Svíþjóð og verða þeir án efa frábær undirbúningur fyrir EM sem hefst 11. janúar í Malmö í Svíþjóð.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Ágúst Elí Björgvinsson,
IK Sävehof 29/0
Viktor Gísli Hallgrímsson,
GOG 7/0
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson,
Lemgo 61/136
Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson,
Barcelona 139/545
Ólafur Guðmundsson,
IFK Kristianstad 113/207
Leikstjórnendur:
Elvar Örn Jónsson,
Skern 24/74
Gísli Þorgeir Kristjánsson,
Kiel 21/28
Haukur Þrastarsson,
Selfoss 10/9
Janus Daði Smárason,
Aalborg Håndbold 35/41
Hægri skytta:
Kristján Örn Kristjánsson,
ÍBV 5/11
Teitur Einarsson,
IFK Kristianstad 16/15
Hægra horn:
Sigvaldi Guðjónsson,
Elverum 18/31
Viggó Kristjánsson,
Leipzig 0/0
Línumenn:
Elliði Snær Viðarsson,
ÍBV 4/3
Kári Kristján Kristjánsson
ÍBV 135/155
Sveinn Jóhannsson,
Sönderjyske 5/14
Ýmir Örn Gíslason,
Valur 31/14
Úr æfingahópnum falla þeir Grétar Ari Guðjónsson markmaður og varnarmaðurinn Daníel Þór Ingason getur ekki spilað vegna meiðsla.
Viggó Kristjánsson mun á móti Svíum spila sína fyrstu landsleiki fyrir A-landslið karla.
Til gamans má geta að í hópnum eru fjórir leikmenn landsliðsins bera sama eftirnafn á leikskýrslu.