Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur valið 21 manna æfingarhóp fyrir landsleikina tvo gegn Austurríki í næstu viku.
Liðið mun koma saman til æfinga á Íslandi mánudaginn 31.mars.
Liðið mun leika tvo vináttulandsleiki gegn Austurríki og verður fyrri leikurinn á Ásvöllum (SchenkerHöllinni) föstudaginn 4.apríl kl.19.30. Seinni leikurinn verður í Ólafsvík laugardaginn 5.apríl kl.16.00.
Forsala á fyrri leikinn hefst nk. mánudag á afgreiðslustöðvum Olís í Reykjavík og forsala á seinni leikinn hefst einnig á mánudaginn hjá útibúi Olís í Ólafsvík.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Guif
Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club
Kristófer Fannar Guðmundsson, ÍR
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Rhein-Neckar Löwen
Arnór Atlason, St. Raphael
Aron Pálmarsson, Kiel
Árni Steinn Steinþórsson, Haukar
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Paris Handball
Bjarki Már Gunnarsson, Aue
Guðjón Valur Sigurðsson, THW Kiel
Gunnar Steinn Jónsson, Nantes
Kári Kristján Kristjánsson, Bjerringbro-Silkeborg
Ólafur Andrés Guðmundsson, Kristianstadt
Ólafur Gústafsson, Flensburg
Róbert Gunnarsson, Paris Handball
Snorri Steinn Guðjónsson, GOG
Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein-Neckar Löwen
Sverre Andreas Jakobsson, TV Grosswallstadt
Vignir Svavarsson, TWD Minden
Þórir Ólafsson, KS Vive Targi Kielce