A kvenna | Leikdagur hjá stelpunum okkar
Fyrri vináttulandsleikur A landsliðs kvenna fer fram í kvöld í Lambhagahöll og hefst viðureign Íslands og Póllands kl. 20:15. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir EM 2024 sem hefst í lok nóvember og eru þetta einu leikir liðsins hér á landi fyrr stórmótið. Síðari viðureignin fer fram á morgun í Set höllinni á Selfossi kl. 16:00.
Frítt er á leikina og verða þeir í beinni útsendingu á Handboltapassanum.
Leikskrá leikjana má finna hér: https://www.hsi.is/wp-content/uploads/2024/10/hsi-leikskrakvenna_isl_pol_web.pdf