A kvenna | Ísland – Noregur í kvöld
A landslið kvenna leikur fyrri vináttulandsleik sinn í kvöld gegn B liði Noregs á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19:30. Frítt er inn á leikinn í boði Kletts.
Síðari leikur liðanna verður á laugardaginn 16:00. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir umspilsleiki um laust sæti á HM 2024 sem spilaðir verða í apríl.
Leikjunum er streymt á miðlum HSÍ.
Fjölmennum á Ásvelli og styðjum stelpurnar okkar