A karla | Ferðadagur
Snemma í morgun kom landsliðið saman í Víkinni til æfinga og eftir góðan hádegisverð var haldið til Keflavíkur. Strákarnir okkar héldu af landi brott um miðjan dag þegar hópurinn sem telur 18 leikmenn og 10 starfsmenn liðsins flaug með Icelandair til Kaupmannahafnar. Þaðan var haldið með rútu til Kristianstad þar sem liðið mun vera fram að brottför til Króatíu nk. þriðjudag.
Á morgun leikur Ísland fyrri vináttulandsleik sinn gegn Svíþjóð í Kristianstad. Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV 2.