A karla | Breytingar á leikmannahópi
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari hefur gert breytingar á leikmannahópi Íslands sem mætir Bosníu í Laugardalshöll á miðvikudaginn kl. 19:30.
Vegna meiðsla Arons Pálmarssonar, Elliða Viðarssonar og Sigvalda Guðjónssonar koma til liðs við hópinn í dag Arnar Freyr Arnarsson, Benedikt Óskarsson og Birgir Már Birgisson.
Miðasala á leikinn gegn Bosníu er á Tix: https://tix.is/event/18554/island-bosnia-undankeppni-em-2026
Fyllum höllina og styðjum strákana okkar