Strákarnir í U-18 ára landsliðinu byrjuðu úrslitakeppni EM sem haldin er í Póllandi af krafti. Þeir unnu sterkt lið Serba 29-24 eftir að hafa verið undir í hálfleik 13-14. Frábær kafli í byrjun seinni hálfleiks lagði grunninn að sigrinum, en á þessum kafli smelltu strákarnir í lás í vörninni, Einar Baldvin stóð sig frábærlega í markinu og hraðaupphlaupin voru vel smurð. Á fyrstu 10 mín seinni hálfleiks skoruðu strákarnir 10 mörk gegn 1 og breyttu stöðunni úr 13-14 í 23-15.
Óðinn Ríkharðsson var útnefndur maður leiksins af dómnefnd mótsins en hann skoraði 7 mörk.
Mörk Íslands:
Ómar Ingi Magnússon
8
Óðinn Ríkharðsson
7
Birkir Benediktsson
4
Egill Magnússon 3
Hákon Daði Styrmisson 3
Arnar Arnarsson 1
Henrik Bjarnason 1
Kristján Kristjánsson 1
Sturla Magnússon 1
Einar Baldvin Baldvinsson varði 13 skot og Grétar Guðjónsson 6
Næsti leikur strákana er á morgun á móti gríðarsterku liði Svía, en leikurinn hefst kl 15 á íslenskum tíma. Svíar léku í dag við Svisslendinga og unnu 29-25.