Íslenska liðið spilaði síðasta leikinn í riðlakeppninni í dag á móti Sviss og tapaði 22-24. Þar með er ljóst að liðið kemst ekki í keppni um 8 efstu sætin heldur þarf að spila um sæti 9-16.
Svisslendingar byrjuðu betur í leiknum og höfðu forystu í hálfleik 14-9, markvörður þeirra var erfiður íslenska liðinu og auk þess náði íslenska liðið engum hraðaupphlaupum sem eru sterkasta vopn liðsins. Okkar strákar náðu að minnka muninn í 2 mörk en lengra komust þeir ekki og tveggja marka tap varð staðreynd. Ísland lentu því í 2.-3.sæti riðilsins jafnir Sviss en þar sem Sviss vann inbyrðisleikinn þá fara þeir áfram en við verðum að bíta í það súra epli að spila um sæti 9.-16.
Það eru sannarlega mikil vonbrigði þar sem íslensku strákarnir eru búnir að spila vel, vinna góðan sigur á Serbum og töpuðu unnum leik á móti Svíum niður í jafntefli,7 sekúndum fyrir leikslok. Á sama tíma jöfnuðu Svisslendingar á lokasekúndum á móti Serbum og tryggðu sér gott stig þar. Nú taka við leikir við Rússa og Makedóna á þriðjudag og miðvikudag. Strákarnir eiga ennþá möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á HM á næsta ári og er það klárlega markmiðið.
Markaskorar Íslands:
Ómar Magnússon
5
Egill Magnússon
4
Sturla Magnússon
4
Birkir Benediktsson
3
Dagur Arnarsson
2
Hlynur Bjarnason
2
Leonharð Harðarson
2
Arnar Freyrrnarsson
1
Óðinn Ríkharðsson
1
Einar Baldvin Baldvinsson átti frábæran leik í markinu í síðari hálfleik.
Íslendingar spila næst á móti Rússum á þriðjudag kl. 13