Handhafar A og B aðgönguskírteina HSÍ sem ætla final four helgi Coca Cola bikarins geta nálgast miða á leikinn miðvikudaginn 6. mars milli kl.11 og 13 á skrifstofu HSÍ.
Á fimmtudeginum 7. mars munu kvennaliðin mætast í undanúrslitum.
Kl. 18.00 – ÍBV – Valur
Kl. 20.15 – Stjarnan – Fram
Á föstudeginum 8. mars leika svo karlaliðin sína undanúrslitaleiki.
Kl. 18.00 – Fjölnir – Valur
Kl. 20.15 – FH – ÍR
Laugardagurinn 9. mars verður svo aðalhátíðin þar sem úrslitaleikir í bæði kvenna og karla verða leiknir.
Kl. 13.30 Úrslitaleikur kvenna.
Kl. 16.00 Úrslitaleikur karla.
Miðar verða eingöngu afhendir gegn framvísun skírteinis og skilríkja.
ATH. Miðar verða ekki afhentir á öðrum tíma.