Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðisvið Háskólans í Reykjavík.
Staðan er kostuð af Háskólanum í Reykjavík og Handknattleikssambandi Íslands (HSÍ) og mun nemandinn ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 18. júní og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkv. skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
– Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist líkamlegri getu leikmanna kvennalandsliðs Íslands í handbolta. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliðsins og HSÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum HSÍ.
– Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á A-landsliði kvenna í handbolta og yngri landsliðum kvenna í handbolta í nánu samstarfi við þjálfarateymi A-landsliðsins og undir handleiðslu þjálfarateymis og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
– HSÍ og þjálfarateymi A-landsliðs geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn kvennalandsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðisviðs HR.
– Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við A-landslið kvenna og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið kvenna í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til:
hafrunkr@ru.is og sveinntho@ru.is.