Úrskurður aganefndar 26. nóvember 2024

Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:

  1. Jökull Ari Sveinsson leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Aftureldingar og KA í bikarkeppni 4.flokks karla þann 23.11.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 f). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  2. Hrannar Ingi Jóhannsson leikmaður ÍR hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik ÍR og FH í Olís deild karla þann 22.11.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 d). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  3. Ingólfur Árni Benediktsson leikmaður Þórs hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Þórs og Hauka í bikarkeppni 3.flokks karla þann 24.11.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  4. Heiðmar Björgvinsson leikmaður Þórs hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög ódrengilegrar hegðunar í leik Þórs og Hauka í bikarkeppni 3.flokks karla þann 24.11.2024. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 1. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  5. Ágúst Ingi Óskarsson leikmaður Gróttu hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Aftureldingar og Gróttu í Olís deild karla þann 22.11.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.

Leikbönnin taka gildi 28.11.2024

Fleiri mál lágu ekki fyrir.

Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson