A kvenna | Svekkjandi tap gegn Sviss
Í kvöld fór fram fyrri vináttulandsleikur stelpanna okkar gegn Sviss en leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst 29. nóvember nk. í Austurríki.
Heimakonur höfðu yfirhöndina snemma leiks og eftir 15 mínútna leik var staðan 10 – 4 Sviss í vil. Okkar stelpur komu sér jafnt og þétt betur inn í leikinn og með góðum varnarleik náðu þær að minnka muninn fyrir hálfleik í 18 – 16 Sviss í vil.
Síðari hálfleikur var stál í stál en þegar 2 mínútur voru eftir af leiknum hafði Sviss forystu 30-27. Íslensku stelpurnar náðu góðu áhlaupi í lokin og náðu þær að minnka muninn í eitt mark þegar um mínúta lifði leiks.
Þrátt fyrir hetjulega baráttu varnarlega nægði það ekki því lokaskot Theu sem endaði í markinu var of seint og eins mark tap niðurstaðan.
Markaskorarar Íslands:
Elín Klara Þorkelsdóttir – 6
Steinunn Björnsdóttir – 5
Perla Ruth Albertsdóttir – 4
Thea Imani Sturludóttir – 4
Andrea Jacobsen – 3
Þórey Rósa Stefánsdóttir – 2
Dana Björg Guðmundsdóttir – 1
Katrín Anna Ásmundsdóttir – 1
Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 7 bolta og Hafdís Renötudóttir 2.
Lokaleikur okkar stúlkna fyrir EM er á sunnudaginn og leika þá þær síðari æfingarleik sinn við Sviss áður en þær halda til Austurríkis nk á þriðjudag.