A kvenna | EM hópurinn tilkynntur
Þjálfarateymi A landsliðs kvenna tilkynnti fyrir stundu á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Icelandair hvaða 18 leikmenn hafa verið valdið til þátttöku á EM kvenna sem hefst í lok nóvember. En mótið er að þessu sinni haldið í Austurríki, Sviss og Ungverjalandi.
Stelpurnar okkar koma saman til æfinga 18. nóv. hér á landi og halda til Sviss 21. nóv. en liðið mun áður en að EM kemur leika tvo vináttuleiki gegn Sviss þar ytra.
Ísland leikur í F-riðli EM 2024 og spilar liðið í Innsbruck í Austurríki. Fyrsti leikur liðsins er 29. nóv. þegar liðið leikur gegn Holland, annar leikur þeirra er svo 1. des. gegn Úkraínu og síðasti leikur riðlakeppninnar er gegn Þýskalandi 3. desember.
Leikmannahópur Íslands er þannig skipaður:
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus (63/4)
Hafdís Renötudóttir, Valur (62/4)
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (56/89)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (28/6)
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (2/3)
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (56/74)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (16/45)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (23/59)
Elísa Elíasdóttir, Valur (17/15)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK (19/11)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (4/10)
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (21/19)
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (52/110)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Haukar (117/244)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (51/72)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (94/96)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (82/178)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (140/405)
EM 2024 kvenna verður í beinni útsendingu á RÚV.