Bakhjarlar | 20 ára samstarf við Kempa á enda

Það voru tímamót í gær þegar strákarnir okkar léku gegn Georgíu í undankeppni EM 2026, þetta var í síðasta skiptið sem leikið var í landsliðstreyjum frá Kempa. Samstarf Kempa og HSÍ byrjaði 2004 og er því 20 ára farsælu samstarfi lokið.

HSÍ þakkar Kempa fyrir frábæra þjónustu og gott samstarf í öll þessi ár. Nú tekur við nýtt og spennandi samstarf og verður það tilkynnt á næstunni á miðlum HSÍ.