HSÍ og íþróttafræði HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu
KOSTUÐ MEISTARANÁMSSTAÐA – KVENNALANDSLIÐ
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Handknattleikssambandi Íslands (HSÍ) og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur. Umsóknarfrestur er til 15. maí og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
– Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist líkamlegri getu leikmanna kvennalandsliða Íslands í handknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliðsins og HSÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum HSÍ.
– Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á landsliðum kvenna í handknattleik undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
– HSÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn kvennalandsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
– Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við kvennalandsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið kvenna í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá HSÍ sem hluta af námi sínu.
– Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til:
hafrunkr@ru.is og hjaltio@ru.is