Úrskurður aganefndar 19. apríl 2023
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
Jón Einar Pétursson leikmaður Víðis hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Víðis og Fjölnir U í 2. deild karla þann 18.04.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Starri Friðriksson leikmaður Stjörnunnar hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Stjörnunnar og ÍBV í úrslitakeppni Olís deildar karla þann 18.04.2023. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Ágúst Karl Karlsson