A kvenna | Stelpurnar okkar í 2. styrkleikaflokki
EHF gaf út í morgun styrkleikaflokka þegar dregið verður í riðla í undankeppni EM 2024 næsta fimmtudag. Stelpurnar okkar færast upp um styrkleikaflokk og verða í 2. styrkleikaflokki að þessu sinni, síðustu drætti hefur liðið setið í 3. styrkleikaflokki.
Fjölgað verður liðum á EM 2024 sem fram fer í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss en dregið verður í átta riðla með fjórum liðum í hverjum riðli. Tvö efsti lið hvers riðils fara áfram í lokakeppnina ásamt því að fjórum liðum sem hafna í þriðja sæti.
Styrkleikarnir fyrir dráttinn eru eftirfarandi.
1. styrkleikaflokkur:
Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð, Holland, Svartfjallaland og Króatía.
2. styrkleikaflokkur:
Ísland, Slóvenía, Rúmenía, Pólland, Serbía, Tékkland, Norður Makedónía og Slóvakía.
3. styrkleikaflokkur:
Tyrkaland, Ítalía, Færeyjar, Portúgal, Úkraína, Grikkland, Litháen og Kósovo.
4. styrkleikaflokkur:
Bosnía, Aserbadsjan, Búlgaría, Ísrael, Finnland, Lúxemorg og Bosnía.