Stelpurnar okkar léku sjöunda og jafnframt síðasta leik sinn í dag gegn Finnlandi á European Open í Gautaborg. Allt var í járnum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að hafa forystu. Staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Finnlandi.
Síðari hálfleikur var jafn og spennandi en íslensku stelpurnar voru sterkari í lokin og unnu góðan baráttusigur. Lokastaða var 24-23 fyrir Íslandi.
Með sigrinum í dag tryggðu stelpurnar sér 13. sætið á mótinu.
.
Markaskor Íslands:
Dagmar Guðrún Pálsdóttir 12, Ágústa Rún Jónasdóttir 4, Lydía Gunnþórsdóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Kristbjörg Erlingsdóttir 1, Guðrún Hekla Traustadóttir 1, Eva Gísladóttir 1
Markvarsla:
Ingunn María Brynjarsdóttir varði 15 skot 39%
Á myndinni má sjá Ingunni Maríu Brynjarsdóttur og Lydíu Gunnþórsdóttur