A kvenna | Stelpurnar okkar drógust gegn Ísrael
Í morgun var dregið var í forkeppni fyrir HM kvenna 2023 sem fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Stelpurnar okkar voru í efri styrkleikaflokki og drógust gegn Ísrael, fyrri leikurinn fer fram hér heima 2./3. nóvember en síðari leikurinn í Ísrael verður leikinn 5./6. nóvember.
Sigurliðið úr einvíginu fer í umspil um sæti á HM en þar bætast við 10 lið sem tóku þátt í EM í desember sl. auk Tékklands.