ÁRSÞING HSÍ 2022
65. ársþing Handknattleikssambands Íslands verður haldið laugardaginn 30. apríl 2022 í Origo Höllinni að Hlíðarenda
Skráning þingfulltrúa hefst kl.09:00 og verður þingsetning sama dag kl. 10:00.
Vakin er athygli á því að þingskjölin munu ekki liggja fyrir útprentuð á þinginu heldur verður það umhverfisvænt. Þingfulltrúar eru því beðnir um að taka með sér snjalltæki en netsamband verður á staðnum.
Á heimasíðu HSÍ má finna þau þingskjöl sem liggja fyrir þinginu ásamt lista yfir framboðum til stjórnar HSÍ sem og málefnum sem óskað hefur verið eftir umræðu um.