U-18 karla | Dregið í riðla á EM
Dregið var í riðla fyrir Evrópumeistaramót U-18 ára landsliða karla í morgun en strákarnir okkar voru í öðrum styrkleikaflokki í drættum.
Ísland mun spila í A-riðli ásamt Þýskalandi, Ungverjalandi og Póllandi en mótið fer fram í Svartfjallalandi 4. – 14. ágúst nk.
Þjálfarar U-18 ára landsliðs Íslands eru Heimir Ríkarðsson og Gunnar Andrésson.