Úrskurður aganefndar 9. júní 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Agnar Smár Jónsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar hegðunar í leik ÍBV – Vals í Úrslitakeppni Olís deildar karla þann 8.6. 2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 c). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.