Úrskurður aganefndar 2. júní 2021
Eftirtalin mál lágu fyrir og var tekið til úrskurðar:
- Breki Þór Óðinsson leikmaður ÍBV hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik HK og ÍBV í 8 liðar úrslitum 3fl karla þann 1.6.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 a). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
Fleiri mál lágu ekki fyrir.
Úrskurðinn kváðu upp Sverrir Pálmason, Arnar Kormákur Friðriksson og Arnar Þór Sæþórsson.