HSÍ | Handknattleiksfólk ársins 2024
Handknattleikskona ársins
Handknattleikskona ársins 2024 er Elín Jóna Þorsteinsdóttir, 28 ára, markvörður hjá úrvalsdeildarliði Aarhus Håndbold í Danmörku og A landsliði kvenna.
Elín Jóna er ein burðarása kvennalandsliðsins sem tók nýverið þátt í EM 2024 í Austurríki, Sviss og Ungverjalandi. Elín Jóna varði þar 76 skot á EM eða 34,21% markvörslu í þremur leikjum Íslands. Elín Jóna hefur leikið undanfarin ár í Danmörku og skipti um mitt síðasta ár um lið þegar hún færði sig yfir í Aarhus Håndbold sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni.
Elín Jóna er frá Seltjarnarnesi og lék með Gróttu upp yngri flokka félagsins og hóf að leika með meistaraflokki Gróttu tímabilið 2014 – 2015 og varð um vorið Íslandsmeistari.
Árið 2015 skipti Elín Jóna yfir í Hauka og lék með liði félagsins til 2018 þegar hún fór í atvinnumennsku. Elín Jóna hefur leikið í Danmörku með Vendsyssel Håndbold, Ringkøbing Håndbold, EH Aalborg og Aarhus Håndbold.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir hefur leikið 68 landsleiki og skorað 4 mörk.
Handknattleiksmaður ársins
Handknattleikskarl ársins 2024 er Ómar Ingi Magnússon, 27 ára hægri skytta Madgeburg í Þýskalandi og A landsliðs karla.
Ómar Ingi varð Þýskalandsmeistari og bikarmeistari í handknattleik í vor auk þess hann varð þriðji markahæstur í Bundesligunni, efstu deild Þýskalands, á síðustu leiktíð. Magdeburg komst einnig í Final4, úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu, með Ómar Inga innanborðs.
Með landsliðinu náði Ómar 10. sæti á EM 2024 í Þýskalandi. Á mótinu skoraði Ómar Ingi 19 mörk. Einnig lék hann stórt hlutverk með landsliðinu þegar það tryggði sér þátttökurétt í lokakeppni HM 2025 með tveimur öruggum sigrum gegn Eistlandi í maí.
Ómar lék með yngri flokkum Selfoss og spilaði með meistaraflokki bæði á Selfossi og með Val áður hann hélt í atvinnumennsku til Danmerkur 2016. Þar lék hann með bæði Aarhus Håndbold og Aalborg Håndbold áður en hann flutti sig um set og hóf að leika með SC Magdeburg sumarið 2020 hvar hann hefur átt mikilli velgengni að fagna.
Ómar hefur leikið 88 landsleiki og skorað í þeim 317 mörk. Ómar Ingi Magnússon var kjörinn Íþróttamaður ársins 2021 og 2022 auk þess að vera í hópi tíu efstu í kjörinu fyrir árið 2024.